Næstu sýnignar & viðburðir
Ég er alltaf að vinna í einhverju sama hvort það er mín verk, viðburðahald eða sýningarstaðir fyrir aðra skapandi einstaklinga.
Hér getið þið séð hvað er á döfinni og hvað er ongoing í mínu skapandi lífi.
Menning í Miklagarði
Verkefnið “Menning í Miklagarði” er að halda sinn 4 viðburð 28-29. júní 2025.
Sýningar eftir Sædísi Hörpu, Hönnu Dís Whitehead og sjálfa mig verða á viðburðnum.
Verkefnið er styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitafélaga.
Hægt er að fylgjast með framvindu á @Stúkusalur á instagram, mínu eigin insta eða Tiktok @ragnheidurrrr og í viðburðnum sem er með link hér að neðan.
Stúkusalurinn
Stúkusalurinn er vinnurými og sýningarsalur í Miklagarði, gömlu verðbúðinni á Höfn í Hornafirði.
Nú þegar hafa listamenn verið að vinna að sínum verkum og rannsóknum sem og þó nokkrir haldið sýnignar þar.
Hanna Dís Whitehead er þar núna í Maí/Júní að vinna að nýju verki og svo tekur Sædís Harpa við með sýninguna Mávar á viðburðnum Menning í Miklagarði.
Rófið - sýning
Rófið er verkið sem ég er að vinna í þessa stundina. Rófið er vinnutitill og er ég í óða önn að finna sýningarstað fyrir sýninguna.
Ég mun vera með smá preview á viðburðnum Menning í Miklagarði á Höfn í Hornafirði helgina 28.-29. júní, sem er mjög skemmtileg helgi því ég á afmæli 28. júní.