Óskasteinar
-Vörður á Tilfinningaveginum.
Það eru ár og dagar séu síðan að fólk þrammaði fótgangandi Tilfinningaveginn.
Frá Skeiðarársandi, þvert yfir jökulár austur fyrir Hvalnesskriður eða frá Hvalnesskriðum suður eftir Skeiðarársandi. Náttúran á svæðinu býr enn yfir sinni ægifegurð og er enn jafn mikilfengleg og ógnvænleg.
Nú á dögum eru komnar upp vörður á Tilfinningaveginum sem nefnast Óskasteinar. Hægt er að hafa upp á Óskasteinunum þegar farið er veginn, sem glóa eins og mjúkt og pastellitað gull í svörtu og svöru umhverfinu.
Við hvern Óskastein blasir við stórfengleg náttúra með sína sérstöðu í veðráttu og umhverfi. Þegar náð hefur að Óskasteinunum hrannast tilfinningarnar upp og yfirtaka líkamann þar til ein verður yfirsterkari öðrum. Í samspili við náttúrulegt sjónarspili brýst sú tilfinning líkamlega fram í tilfinningalegri heilun. Vegferðin í gegnum Tilfinningaveginn tekur á hörðustu tilfinningaverurnar sem vökna jafnvel um augun þegar haft er upp á næsta steini.
Það er ekki óþekkt að ferðamenn nýti nokkra daga eða jafnvel vikur í að fara Tilfinningaveginn og njóta samverunnar við hvern Óskastein. Margir bruna áfram og stoppa stutt við aðra hvora vörðu og leyfa innsæinu að ráða hvort Óskasteinarnir hafi tilfinningalegt aðdráttar afl eða ekki.
Á leiðarenda segja margir að Óskasteinarnir hafi aðstoðað þau við að grafa í tilfinningarófið og leiða sig áfram að hreinu innsæi til að sprengja tilfinningarskalann. Við lok ferðalagsins myndast tilfinningaleg ró og mun tilfinningalegt jafnvægi skapast eftir að ferðalaginu lýkur.
Verkið var sýnt á #5 Umhverfing í Sveitafélaginu Hornafjörður. Steinarnir voru staðsettir við á dreif um náttúru Hornafjarðar. Bláu steinarnir mörkuðu upphaf verksins í sinn hvorum endanum á sveitafélaginu.